Nenni ekki að afsaka mig að ég sé ekki búin að
skrifa neitt hérna inn en ég bara varð að koma með þessa sögu. Hún er
sem sagt svona:
Mamma og Pabbi fóru í morgun með Möggu systu og Magga og fullt af öðru
fólki til Frakklands að sóla sig. Síðast þegar pabbi minn fór til
útlanda í sól var held ég 1992 eða 1993. Þá fórum við fjölskyldan til
Hollands í sumarhús. En anywho...þetta var þá líka í síðasta skipti sem
hann notaði sundskýluna sína án djóks...þannig að hann stóð frammi
fyrir því að fara á Frönsku riviíeruna í LJÓTUSTU sundskýlu í heiminum.

Ekki ólík þessari
Tízkulöggan næstyngsta dóttir hans ætlaði sko ekki að láta þetta gerast
og dró hann með sér í Intersport í Smáralind. Þar valdi hann sér líka
þessar töffara O'neil boxerbuxnaskýlu.
Og já í þessari sömu ferð keypti 59 ára og 270 daga gamli faðir minn
sér LÍNUSKAUTA þá hélt ég að ég yrði ekki eldri þegar hann tautaði með
sjálfum sér " já mig hefur alltaf langaði í línuskauta" og hrifsaði
línuskauta sem voru á tilboði þarna og fór að býsnast við að máta þá -
þess má geta að þegar ég var í kringum 8 ára aldurinn þá átti ég
hjólaskauta....úff....hlakka til að sjá hann þeysast um bæinn á
línuskautum....
Posted at 05:31 pm by
duna
Permalink
Þá er maður orðin flokkstjóri í unglingavinnunni....
Hæ hó....Fyrsti dagurinn með krakkana var í gær og hann byrjaði ansi
skrautlega. Við Elín erum sem sagt með 8. bekk sem þýðir að þessir krakkar eru að koma í fyrsta skipti í vinnuskólann og vinna bara
3.5 tíma á dag 4 daga vikunnar.
Vinnan felst aðallega í því að reyta arfa, tína rusl, sópa og ect sem
sagt skítajobb basically og öll vinna fer fram utandyra og því á maður
að vera klæddur eftir veðri.
Fyrsta atvikið sem að ég missti næstum andlitið yfir var þegar tvær stelpur mættu kl 8 stífmálaðar í
svörtum þröngum fínum gallabuxum og
hlírabol undir
leðurjakka.
Við Elín lásum nú aðeins yfir þeim og spurðum þær hvort þetta væru föt
sem að þær vildu eyðileggja. Þær í sínum gelgjustælum svöruðu auðvitað
játandi. Eftir einn og hálfan tíma þá komu þær til okkar og spurðu hvað
myndi gerast ef þær færu. Við sögðumst ekki ætla að pína þær til að
vinna og sögðum bara að þær fengju þá engin laun. Og þær fóru með det
samme. Önnur kom svo aftur í morgun og stóð hún sig með prýði...
Annað atvikið: Þarna misstum við nú alveg andlitið. Þá kom ung pía í
snípsíðu pilsi og ég er ekki að grínast með þetta, langar að minna fólk
á að í gær var
GRENJANDI RIGNING
allan daginn og því á engum tímapunkti þann dag tækifæri til að láta
sjá sig í svona stuttu pilsi. Og já gleymdi að nefna að hún var heldur
ekki í neinum sokkabuxum. Eftir smá spjall við píu og eftir að hún hafi
neitað að fara heim til að skipta um föt því druslufötin voru í
þvottavélinni þá samþykkti hún að fá
hlífðarbuxurnar mínar lánaðar og stóð hún sig með prýði þann dag þrátt fyrir að klæðast bara pilsi og engum sokkabuxum innan undir.
Í dag fór hún að okkar ráðum og kom í buxum.....hehe
en farin í saumó og nenni ekki að skrifa meira.....en komið með
KOMMENT elskurnar sem kíkið hér inn...svo gaman að fá smá komment
KISS KISS.....
Posted at 11:53 am by
duna
Permalink
Með Elínu í dag....okkur leiddist svo hrikalega á námskeiði fyrir unga
stjórnendur sem við erum á á vegum vinnuskólans.....svo við getum nú
haft stjórn á þessum ungmennum í sumar.....En henni tókst sem sagt
næstum því að hengja mig á orðinu
ÞÓRSMÖRK og NB ég var komin með __ __ RSMÖRK eftir svona 8 gisk.......en mér til varnar þá sagði hún mér alltaf að þetta væri eitthvað fótboltaorð

Annie M and Lína á góðri stundu í eyjum í haust þegar við
vorum nýbúnar að valta yfir ÍBV - Vá sætar......
Posted at 10:29 am by
duna
Permalink
Þessi próf sem ég hef tekið í vor
Hafa einkennst gríðarlega mikið af lélegu ímyndunarafli kennara til að
semja ný raunhæf verkefni t.d....Búin að fara í 4 próf núna þar sem
sömu spurningarnar hafa
verið notaðar áður....
Posted at 02:01 pm by
duna
Permalink
Ég er orðin nokkuð viss um.......
að ég hafi verið Snigill í fyrralífi
Svo hægt les ég bækur (skólabækur)
Posted at 10:49 am by
duna
Permalink
Góður eða vondur draumur???
Hellú folks...ég held að ég sé orðin eitthvað klikk núna...Mig dreymdi
fáránlegan draum en eins og alltaf þegar manni dreymir þá er það svo
hræðilega raunverulegt að þegar ég vaknaði þá fannst mér það ennþá
raunverulegt. Fyrsta sem ég man eftir er að ég er að stela
áherslutússum úr búð...og það næsta sem ég man var að ég sat í dómssal
og það var verið að dæma mig í eins árs fangelsi fyrir að stela þessum
tússum.
Í fanelsinu var ég látin vinna vinnu sem ég man ekki hver var en ég man
að ég var alveg snælduvitlaus að vera í fangelsi. Þannig að ég strauk
af því að mig langaði svo að fara í útskriftarveisluna hjá Hörpu. sem
btw er búin og ég var að lesa próf þegar hún var í raunveruleikanum

.
En þegar ég var búin að vera í smá stund í afmælisveislunni þá varð ég
svo hrædd um að verða dæmd kannski í lengra fangelsi að ég fór til baka
og laumaðist inn án þess að nokkur tæki eftir að ég var farin. Þá allt
í einu kom Kalli þjálfari og sagði okkur að fara út að hita upp því að
æfingin væri að byrja. Þá var fangelsið allt í einu komið á
Stjörnuvöllinn og allar stelpurnar í liðinu voru líka í fangelsinu.
Þannig að var þetta góður eða vondur draumu...veit það ekki ennþá..mér
fannst alveg hræðilegt að vera í fangelsi en svo þegar fullt af vinum
mínum voru allt í einu með mér þá var það aðeins skárra.....
Já ég á bara eitt próf eftir....en held að ég sé að verða aðeins of steikt..
Posted at 03:16 am by
duna
Permalink
ohh ég er svo ánægð með hana Silvíu mína......
Á fimmtudaginn horfðum við Stjörnustelpurnar saman á Júróvísion og vorum frekar
SVEKKTAR Þegar
hún Silví komst ekki áfram því að allar meginlandsþjóðirnar standa
allaf saman.......helv. drasl....Viðurkenni reyndar alveg að ég held að
ég hafi verið mest svekktust á þessum úrslitum. En við töluðum samt um
það hvað það yrði gaman ef húm myndi nú bara fara fram á sviðið aftur
og koma með smá Silvia Night Uppþot...... Við fengum ósk okkar uppfyllta.
Tékkið á ÞESSU
Kv, Dúnský......
Posted at 04:45 pm by
duna
Permalink
Vissi að hann væri skotinn í mér
Hver er maðurinn?
Já góðan daginn ég ætla að velja slána sem er 2.30 og getur takmarkað í
fótbolta, 17. ára sem hefur rétt klárað 15 leiki sem atvinnumaður, já
og svo tvo fótbrotna gaura í sóknarlínuna á HM hjá mér
Posted at 01:33 am by
duna
Permalink
Veit ekki en það er eitthvað rangt við þessa mynd.....