Þá er maður orðin flokkstjóri í unglingavinnunni....
Hæ hó....Fyrsti dagurinn með krakkana var í gær og hann byrjaði ansi
skrautlega. Við Elín erum sem sagt með 8. bekk sem þýðir að þessir krakkar eru að koma í fyrsta skipti í vinnuskólann og vinna bara
3.5 tíma á dag 4 daga vikunnar.
Vinnan felst aðallega í því að reyta arfa, tína rusl, sópa og ect sem
sagt skítajobb basically og öll vinna fer fram utandyra og því á maður
að vera klæddur eftir veðri.
Fyrsta atvikið sem að ég missti næstum andlitið yfir var þegar tvær stelpur mættu kl 8 stífmálaðar í
svörtum þröngum fínum gallabuxum og
hlírabol undir
leðurjakka.
Við Elín lásum nú aðeins yfir þeim og spurðum þær hvort þetta væru föt
sem að þær vildu eyðileggja. Þær í sínum gelgjustælum svöruðu auðvitað
játandi. Eftir einn og hálfan tíma þá komu þær til okkar og spurðu hvað
myndi gerast ef þær færu. Við sögðumst ekki ætla að pína þær til að
vinna og sögðum bara að þær fengju þá engin laun. Og þær fóru með det
samme. Önnur kom svo aftur í morgun og stóð hún sig með prýði...
Annað atvikið: Þarna misstum við nú alveg andlitið. Þá kom ung pía í
snípsíðu pilsi og ég er ekki að grínast með þetta, langar að minna fólk
á að í gær var
GRENJANDI RIGNING
allan daginn og því á engum tímapunkti þann dag tækifæri til að láta
sjá sig í svona stuttu pilsi. Og já gleymdi að nefna að hún var heldur
ekki í neinum sokkabuxum. Eftir smá spjall við píu og eftir að hún hafi
neitað að fara heim til að skipta um föt því druslufötin voru í
þvottavélinni þá samþykkti hún að fá
hlífðarbuxurnar mínar lánaðar og stóð hún sig með prýði þann dag þrátt fyrir að klæðast bara pilsi og engum sokkabuxum innan undir.
Í dag fór hún að okkar ráðum og kom í buxum.....hehe
en farin í saumó og nenni ekki að skrifa meira.....en komið með
KOMMENT elskurnar sem kíkið hér inn...svo gaman að fá smá komment
KISS KISS.....