Má fólk heita Dreki

og nú getur fólk líka farið að skýra börnin sín Róman - Gott fyrir heita chelsea aðdáendur
Posted at 04:07 pm by
duna
Permalink
Prófin búin LOKSINS......
Posted at 03:02 am by
duna
Permalink
Já ég hefði ekki viljað eyða sumardeginum fyrsta
NEITT öðruvísi.....Lærandi fyrir síðasta prófið uppí MBL húsi...
Sérstaklega ekki svona:

Eða svona:

ÆJI stelpur MUNIÐI.......
Hvernig var ykkar dagur??
Posted at 06:07 am by
duna
Permalink
Prufaði líka að sjá til hversu margra ríkja í BNA ég hef komið til og
það er 31% takk fyrir eða 16 ríki....kom sjálfri mér á óvart þarna....

þannig ég á minna eftir af BNA en heiminum....Er það jákvætt eða???
kv...evrópuklikkaða Dúnský
Posted at 02:36 pm by
duna
Permalink
Ég hef víst heimsótt 7% af heiminum
Þá eru bara 93% eftir...

Þetta eru þau 7% sem ég hef heimsótt....jæja nóg að gera verð að fara í ferðalag...
Hér er linkurinn fyrir þá sem langar líka að vita hversu mörg prósent af heiminum þeir hafa heimsótt...
Posted at 07:23 am by
duna
Permalink
Þá er hátíð súkkulaðifíkla gengin í garð og verð ég að viðurkenna að ég
er einn þeirra....Við hlunkasysturnar höfðum það nú bara næs í morgun
og sváfum út. En þegar við vöknuðum höfðum við þó vit á að fá okkur
hollan og góðan morgunmat

áður en við demdum okkur í súkkulaðið....vorum með 3 egg...og ég á 2 en litli hlunkur á 7una...sem er stærst...

hér er litli hlunkur með sitt egg...."þekki þessa græðgi"

ég alltaf svo pen.....bara eitt í einu..

Svo bara var chillað FEITT og horft á Oliver Twist nýju myndina....
Happy Easter Everybody (sagt með skottulæknaröddinni í Simpsons)
Kv, Dúnský
KOMMENTIÐ SVO DÓNARNIR YKKAR!!!!
Posted at 07:18 am by
duna
Permalink
Ég er orðin crazy sko meira en áður og ég kenni refsiréttinum um þetta
allt saman....Ernir skellti sér á djammið með Herði sínum í gær og allt
gott um það að segja nema að klukkan 5 þá vakna ég og enginn Ernir
ennþá komin heim og ekkert sms eða neitt. Ég hringi og ekkert
svar...hringi alveg nokkru sinnum og enginn Ernir svarar....þá fer
ýmindunaraflið náttúrulega af stað og ég fer að hugsa um dóm sem ég las
einmitt í refsirétti þar sem ungt par barði mann til bana af
ástæðulausu...þannig auðvitað hélt ég að Ernir lægi kannski með brotna
höfuðkúpu á Hverfisgötunni eða eitthvað og ég byrja að hringja í Hörð.
Ekki batnaði það þar sem hann sagðist hafa týnt honum....en ráðlagði
mér að hringja í Daða....rock solid gaur hann Daði sérstaklega þegar
hann er mökkaður....náði náttúrulega ekki orði upp úr honum....
En eftir svon klukkutíma þá loksins næ ég í hann og segi í mínu parnoju
tón "HVAR Í ANDSKOTANUM ERT ÞÚ" En auðvitað var hann bara í sínum
mesta sakleysi að dansa einhversstaðar niðrí bæ....
Þakka Svölu refsiréttarkennara fyrir þessa paranoju sem er greinilega búin að festa rætur í hausnum á mér í einhvern tíma
Posted at 06:34 am by
duna
Permalink
Mér finnst Steve Irwin algjör snillingur.....langar ótrúlega að komast
í Australia Zoo þar sem hann ræður ríkjum....en góð saga....þið sem
eruð með digitalið getið horft á Crocodile Hunter á Animal
Planet...Mjög gaman að horfa á það þegar maður á að era að læra fyrir
próf;)

Með risaslöngu....

Að spjalla við Eðlu....
Bið að heilsa í bili
Dúna dýranörd....
Posted at 05:57 pm by
duna
Permalink
Þar sem ég er í prófum og hef ekkert til að skrifa um nema kannski af
hverju ráðherra er ekki hæfur til að fjalla um tiltekið mál....þá datt
mér bara í hug að herma eftir Sigurði Frey og Köllu og taka
spurningarlista af þeirra síðu fyrir ykkur sem hafið ekkert að gera og
langar að skrifa eitthvað fallegt um mig....
Hvar kynntumst við og hversu lengi hefurðu þekkt mig?
Hversu vel þekkirðu mig?
Trúi ég á Guð?
Hvað hugsaðirðu fyrst þegar þú sást mig?
Háralitur?
Augnlitur?
Á ég systkini?
Hefurðu einhvern tímann öfundað mig?
Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
Hvað var það fyrsta sem ég sagði við þig?
Hvernig tónlist hlusta ég á?
Hver er minn besti eiginleiki?
Hvort er ég feimin eða mannblendin?
Finnst þér ég fyndin?
Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?
Hef ég einhverja sérstaka hæfileika?
Spila ég á hljóðfæri?
Hvaða gælunafn passar mér best?
Hef ég kysst þig?
Hvað heldurðu að verði um mig framtíðinni?
Heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
Hvernig manni heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
Hver er uppáhalds minningin þín um e-ð sem við höfum gert saman?
Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
Er ég sannur vinur?
Hef ég hjálpað þér?
Hefur þú hjálpað mér?
Þykir þér vænt um mig?
Viltu byrja með mér?
Love Dúnský... og það skal sko enginn dirfast til að sleppa því að skrifa....;)
Posted at 04:27 am by
duna
Permalink
og ég er uppí skóla.....gaman gaman.....að gera 3 tíma verkefni sem er búið að ílengjast í 18 tíma.....frábært
Posted at 09:17 pm by
duna
Permalink