|
Fyrsta atvikið sem að ég missti næstum andlitið yfir var þegar tvær stelpur mættu kl 8 stífmálaðar í svörtum þröngum fínum gallabuxum og hlírabol undir leðurjakka. Við Elín lásum nú aðeins yfir þeim og spurðum þær hvort þetta væru föt sem að þær vildu eyðileggja. Þær í sínum gelgjustælum svöruðu auðvitað játandi. Eftir einn og hálfan tíma þá komu þær til okkar og spurðu hvað myndi gerast ef þær færu. Við sögðumst ekki ætla að pína þær til að vinna og sögðum bara að þær fengju þá engin laun. Og þær fóru með det samme. Önnur kom svo aftur í morgun og stóð hún sig með prýði... Annað atvikið: Þarna misstum við nú alveg andlitið. Þá kom ung pía í snípsíðu pilsi og ég er ekki að grínast með þetta, langar að minna fólk á að í gær var GRENJANDI RIGNING allan daginn og því á engum tímapunkti þann dag tækifæri til að láta sjá sig í svona stuttu pilsi. Og já gleymdi að nefna að hún var heldur ekki í neinum sokkabuxum. Eftir smá spjall við píu og eftir að hún hafi neitað að fara heim til að skipta um föt því druslufötin voru í þvottavélinni þá samþykkti hún að fá hlífðarbuxurnar mínar lánaðar og stóð hún sig með prýði þann dag þrátt fyrir að klæðast bara pilsi og engum sokkabuxum innan undir. ![]() Í dag fór hún að okkar ráðum og kom í buxum.....hehe en farin í saumó og nenni ekki að skrifa meira.....en komið með KOMMENT elskurnar sem kíkið hér inn...svo gaman að fá smá komment KISS KISS..... |
| Dúna July 26, 2006 05:30 PM PDT Hey Maja nei ég vissi ekki að hún væri systir þín.....en núna veit ég það.. | ||
| Maja July 23, 2006 12:25 PM PDT Dúna! Býrðu enn á Digranesvegi? Vissirðu að þú býrð í sama húsi og Helga systir?! Man ekki hvort ég var búin að segja þér það. Ég á væntanlega eftir að vera mikið þar þegar ég kem heim 7. ágúst. :) Vona að það sé allt gott að frétta! | ||
| Maja July 23, 2006 12:25 PM PDT Dúna! Býrðu enn á Digranesvegi? Vissirðu að þú býrð í sama húsi og Helga systir?! Man ekki hvort ég var búin að segja þér það. Ég á væntanlega eftir að vera mikið þar þegar ég kem heim 7. ágúst. :) Vona að það sé allt gott að frétta! | ||
| kalla June 26, 2006 02:03 AM PDT Maður nennir nú ekkert að vera með ljótuna í vinnunni... mikið sem ég skil stelpurnar vel! :) | ||
| kalla June 26, 2006 02:03 AM PDT Maður nennir nú ekkert að vera með ljótuna í vinnunni... mikið sem ég skil stelpurnar vel! :) | ||
| Sonja June 22, 2006 12:41 PM PDT og annað... segir manni frá árshátíð og svona en ekkert frá skemmtiatirðunum!! http://www.studentafelag.is/sfhr/rikisrad/images/image/default.aspx?Path=/resources/Controls/48.ascx&C=ConnectionString&Q=Gallery&Groups=287&ID=&Page=123 Ég vil heyra þessa sögu!! | ||
| Sonja June 21, 2006 04:58 PM PDT mér datt aldrei neitt í hug til að kommenta af því ég var búin að heyra söguna... en var að detta eitt í hug. Ertu ekki búin með skaðabótarétt? Geturðu verið heima milli 8-12 á föstudaginn.. kannski líka verið á msn... og kannski líka hjálpað með eins og eitt lokapróf í skaðabótarétti? takk - þú ert best! | ||
| Halla June 14, 2006 01:15 PM PDT erfitt líf hjá þessum fermingarbörnum.. rosalegur vinnutími! þú færð alla mína samúð að hafa verið útil í dag...hver pantaði eiginlega þetta veður?? | ||
| Kaja June 14, 2006 10:05 AM PDT bíddu..? reytir maður ekki arfa í míní-pilsum? vá hvað ég hef verið að misskilja lífið. Takk fyrir gærkvöldið skvís! | ||
| Leave a Comment: |