|
Mamma og Pabbi fóru í morgun með Möggu systu og Magga og fullt af öðru fólki til Frakklands að sóla sig. Síðast þegar pabbi minn fór til útlanda í sól var held ég 1992 eða 1993. Þá fórum við fjölskyldan til Hollands í sumarhús. En anywho...þetta var þá líka í síðasta skipti sem hann notaði sundskýluna sína án djóks...þannig að hann stóð frammi fyrir því að fara á Frönsku riviíeruna í LJÓTUSTU sundskýlu í heiminum. Tízkulöggan næstyngsta dóttir hans ætlaði sko ekki að láta þetta gerast og dró hann með sér í Intersport í Smáralind. Þar valdi hann sér líka þessar töffara O'neil boxerbuxnaskýlu. Og já í þessari sömu ferð keypti 59 ára og 270 daga gamli faðir minn sér LÍNUSKAUTA þá hélt ég að ég yrði ekki eldri þegar hann tautaði með sjálfum sér " já mig hefur alltaf langaði í línuskauta" og hrifsaði línuskauta sem voru á tilboði þarna og fór að býsnast við að máta þá - þess má geta að þegar ég var í kringum 8 ára aldurinn þá átti ég hjólaskauta....úff....hlakka til að sjá hann þeysast um bæinn á línuskautum.... ![]() |
| Siggi Freyr October 2, 2006 02:14 AM PDT ein laglega búin að gera í brækurnar í blogginu ;-) | ||
| Vala August 4, 2006 03:14 PM PDT bara að pabbi þinn sé ekki að línuskauta á sundskýlunni ehemm! | ||
| Leave a Comment: |